House of Gucci: Scott eyðileggur fyrir sjálfum sér

Kvikmyndagagnrýnandi Morgunblaðsins gefur House of Gucci þrjár og hálfa stjörnu.
Kvikmyndagagnrýnandi Morgunblaðsins gefur House of Gucci þrjár og hálfa stjörnu.

„House of Gucci er ævisöguleg dramamynd, sem leikstýrt er af Ridley Scott og spannar yfir þrjá áratugi. Kvikmyndin er byggð á bókinni The House of Gucci: A Sensational Story of Murder, Madness, Glamour, and Greed eftir Sara Gay Forden og segir sanna sögu um endalok þátttöku Gucci-ættarinnar í fyrirtækinu Gucci. Myndin fylgir sambandi Patriziu Reggiani (Lady Gaga) og Maurizio Gucci (Adam Driver) sem táknar upphaf þeirra endaloka.

Ástarsaga Partiziu og Maurizio er sterkasti hlut myndarinnar og mætti flokkast sem „kamp“, þ.e. eitthvað sem verður aðlaðandi fagurfræðilega séð vegna þess að það birtir vondan smekk eða kaldhæðni. Patrizia Reggiani er ung, frökk og aðlaðandi ítölsk kona sem starfar sem skrifstofustjóri hjá vöruflutningafyrirtæki föður síns. Í teiti hittir hún Maurizio Gucci, laganema og erfingja 50% hlutdeildar í Gucci-tískuhúsinu. Patrizia eltir hinn feimna og vandræðalega Maurizio og heillar hann upp úr skónum með sínu mikla sjálfsöryggi og sjarma. Faðir hans, Rodolfo, vill meina að Patrizia sé „gullgrafari“, þ.e.a.s. sækist aðeins eftir auð hans og neyðir hann til þess að velja á milli hennar eða Gucci arfleiðarinnar. Maurizio virðist eiga auðvelt með það val og velur Patriziu fram yfir Gucci og yfirgefur fjölskylduna. Svo virðist sem Maurizio hafi engan áhuga á að taka þátt í fjölskyldufyrirtækinu og sækist ekki eftir peningum fjölskyldunnar. Áhorfendur eiga því erfitt með að ímynda sér að rómantík þeirra eigi eftir að breytist í erfiða baráttu um yfirráð yfir Gucci.

Maurizio byrjar að vinna hjá fyrirtæki föður Patriziu og ástin virðist blómstra á milli þeirra. Hins vegar einn daginn þegar nýgiftu hjónin eru að ganga frá þvotti heima hringir frændi Maurizio, Aldo Gucci (Al Pacino) og býður þeim í afmælið sitt. Patrizia tekur vel í það og hefst þá hennar barátta fyrir því að komast inn í Gucci-fjölskylduna. Erfitt er að átta sig hvaðan þessi áhugi hennar kemur þar sem Ridley Scott stillir þeim hjónum upp eins og þeim þyki sitt einfalda líf, sem þau áttu áður, nægja. Þessi áhugi Patriziu á Gucci kemur því, bæði áhorfendum og eiginmanni hennar, að óvörum. Við tekur langdreginn kafli þar sem Patrizia reynir að sannfæra Maurizio um að taka þátt í fjölskyldufyrirtækinu og loks að taka yfir fyrirtækið með svikum og brellum sem hún leggur til. Áhorfendur eiga erfitt með skilja þessa ákvörðun Patriziu að þvinga alla aðra fjölskyldumeðlimi Gucci út úr fyrirtækinu sem hún hafði áður talið sem vini eða ættingja. Persónusköpunin hjá Ridley Scott er þannig bjöguð þar sem áhorfendur átta sig ekki á af hverju persónurnar taka þær ákvarðanir sem þær gera. Það spilar einnig inn í að sjónarhorn tökuvélarinnar er alviturt og áhugalaust en svo virðist sem Scott vilji ekki sýna raunverulegar tilfinningar eða nota sjónarhorn í fyrstu persónu í myndinni. Atriði sem ættu því að vera tilfinningaþrungin mistakast eins og t.d. þegar hjónin svíkja Paolo Gucci (Jared Leto), frænda Mauricio sem er annar veikur hlekkur myndarinnar. Jared Leto færir hlutverkinu ekkert með sínum ýkta leik.

Þriðji og síðasti hluti myndarinnar fylgir Patriziu einni og fyriráætlunum hennar að myrða fyrrum eiginmann sinn, Maurizio, eftir að hann tekur upp samband við aðra konur og skilur við Patriziu. Maurizio er þá eini meðlimur fjölskyldunnar sem er enn eigandi í Gucci-fyrirtækinu þökk eða sök sé Patriziu.

Búningarnir eftir Janty Yates og leikmyndin eftir Arthur Max eru fallega útfærð og ekki ólíklegt að þau verði tilnefnd til Óskarsins fyrir sín góðu störf. Leikur Lady Gaga og Adam Driver stendur einnig upp úr og bera þau myndina í sameiningu á herðum sér. Myndin inniheldur því marga fallega og vel unna þætti en Ridley Scott tekst að eyðileggja fyrir sjálfum sér rétt eins og Gucci-fjölskyldan gerði á sínum tíma.“

Leikstjórn: Ridley Scott. Handrit: Roberto Bentivegna. Aðalleikarar: Lady Gaga, Adam Driver, Al Pacino og Jared Leto. Bandaríkin, 2021. 157 mín.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Tove Alsterdal
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Tove Alsterdal
5
Torill Thorup