Kláraðu jólagjafakaupin um helgina

Þórunn Birna Guðmundsdóttir er á listmálarabraut í Myndlistaskólanum í Reykjavík.
Þórunn Birna Guðmundsdóttir er á listmálarabraut í Myndlistaskólanum í Reykjavík.

Þórunn Birna Guðmundsdóttir, myndlistakona, þekkir betur en margir aðrir hversu tímafrekt getur verið að finna réttu jólagjöfina. Hún ætlaði í fyrsta sinn á ævi sinni að vera utan landsteinanna þessi jólin, nánar tiltekið á Kýpur, en nú hefur flugið fallið niður vegna kórónuveirunnar og verður hún því með fjölskyldunni hér á landi eins og hún er vön. Hún er nú í óðaönn að undirbúa jólin, og gerir það meðal annars með því að skipuleggja jólamarkað á Kex Hostel Reykvík um næstu helgi, þar sem boðið verður upp á muni gerða af ungu listafólki. 

„Sumir segja að það hafi aldrei verið jafn áhugavert að vera ungur listamaður á Íslandi og nú. Enda margir að fjárfesta í fólki sem það hefur trú á inn í framtíðina. Það er einstaklega áhugavert að læra allt sem tengist efni og aðferðum þegar kemur að málverkinu líkt og ég er að gera en námið sem ég stunda í Myndlistaskólanum í  Reykjavík er bæði skemmtilegt og frjálslegt. Ég er að klára seinna árið mitt og mun svo flytja til Bretlands á næsta ári þar sem fyrirhugað er að ég klári BA nám mitt í listaháskóla þar,“ segir hún. 

Hvernig verður helgin á Kex Hosteli?

„Jólamarkaðurinn á Kex Hostel verður haldinn næstu helgi eða dagana 11. til 12.desember frá klukkan eitt til sex um daginn. Þar verður fjölbreytt list ungra listamanna til sölu og við lofum góðri jólastemmingu og skemmtilegri upplifun fyrir alla þá sem leggja leið sína til okkar. Það verða kaldir drykkir í boði Ölgerðarinnar og einnig verður bjór á krana til sölu.“

Af hverju skiptir máli og er töff að kaupa jólagjafir frá ungum íslenskum listamönnum?

„Ég tel að það er alltaf betra að kaupa eitthvað handgert og einstakt, heldur en fjöldaframleidda hluti af stórum fyrirtækjum. Það að styrkja unga listamenn er hvatning fyrir þá að halda áfram með sína list, sem mun í raun alltaf skila sér aftur inn í samfélagið og lífga upp á það. Það er einnig mjög umhverfisvænn kostur að kaupa muni af ungum listamönnum þar sem list er yfirleitt framleidd í takmörkuðu magni og er þar af leiðandi mjög einstök gjöf.

Listafólkið sem verður með vörur á basarnum koma af listmálarabraut Myndlistaskólans í Reykjavík. Einnig verða aðrir fjölbreyttir listamenn sem koma úr öllum áttum. Fólk má búast við allskonar áhugaverðum munum. Þar á meðal gæða prentverkum, handmáluðum taupokum, málverkum, keramik munum og ýmsu fleira. Hvort sem fólk er í leit að jólagjöfum eða vilja bara koma að skoða og upplifa smá jólastemmingu með okkur, þá getum við lofað því að það eitthvað í boði fyrir alla.

Sjálf verð ég með prentverk af málverkum mínum til sölu sem og taupoka sem skarta einnig verkum eftir mig. Ég verð einnig með eitthvað af jóla tengdum munum í boði eins og merkimiða á pakka og fleira. Það er líka aldrei að vita hvort einhver málverkunum mínum munu leita inn á markaðinn sem gestir geta skoðað og jafnvel keypt ef áhugi er fyrir því.“

Hvaða merkingu hafa jólin í þínum huga?

„Jólin fyrir mér snúast um fjölskylduna. Fyrir mér er mikilvægast að eyða jólunum í faðmi hennar og njóta með þeim sem maður elskar mest. Ég er mikið jólabarn og ég elska allt það  sem fylgir jólunum.“

Hvað ætlarðu að gera á jólunum sjálf?

„Ég átti að vera fljúga út til Kýpur núna í desember og eyða jólunum og áramótunum þar með kærastanum mínum. En vegna kórónuveirunnar var fluginu aflýst og féll því það plan alveg niður. Eins mikið og ég hefði viljað komast aðeins í burtu frá hversdagsleikanum og njóta mín í sólinni er ég lúmskt fegin að ég fái að eyða jólunum hérna heima með fjölskyldunni. Ég er mjög vanaföst manneskja og held mikið upp á hefðir og má því segja að þessi breyting á plönum hafi verið lán í óláni.“

Þórunn seldi öll verkin sín á fyrstu sýningunni sem hún …
Þórunn seldi öll verkin sín á fyrstu sýningunni sem hún hélt, „Það er bara eitthvað við hendur…“, sem haldin var í fyrra sumar. Hún segir jákvætt viðhorf í garð ungra listamanna mikilvægt fyrir samfélagið og að það skili sér margfalt til baka aftur.

Hefur árið kennt þér eitthvað áhugavert?

„Ég er mjög þakklát fyrir að hafa fengið að mæta í skólann og sinna náminu þrátt fyrir þá erfiðu tíma sem heimurinn er að ganga í gegnum. Ég hef náð að einbeita mér mikið af minni listsköpun og hefur þetta ár snúist mjög mikið um sjálfskoðun og hvert listin er að leiða mig. Ég er einnig mjög spennt fyrir komandi ári þar sem árið 2022 mun snúast um breytingar í mínu lífi og að prófa eitthvað nýtt.“

Hvað dreymir þig um í jólagjöf?

„Ég hef aldrei neina hugmynd um hvað mig langar í jólagjöf og er þetta ár ekkert öðruvísi. Ég er mjög einföld manneskja og er því ánægð með allar þær gjafir sem ég fæ en ég elska þær gjafir sem sýna fallega hugsun og ást. Það má líka segja að ég er sú týpa sem finnst miklu skemmtilegra að gefa en að þiggja, þar sem ég eyði endalausum tíma í að finna hina fullkomnu jólagjöf fyrir vini mína og fjölskyldu.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Tove Alsterdal
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Tove Alsterdal
5
Torill Thorup