Tónlistarkonan Nicki Minaj tjaldaði heldur betur öllu til og gott betur í myndatöku fyrir 39 ára afmælið sitt. Rapparinn birti þrjár myndir á afmælisdaginn sinn þar sem hún klæðist litlu sem engu og heldur fyrir brjóst sín.
Í myndatökunni heldur hún einnig á afmælis köku. Á einni myndinni er hún allsnakin og situr á stórum bangsa.
Minaj, sem fagnaði afmæli sínu á miðvikudag, er ein söluhæsta tónlistarkona í heiminum. Plötur hennar hafa selst í yfir 100 milljónum eintaka og hefur hún hlotið átta verðlaun á bandarísku tónlistarverðlaununum, fjögur Billboard verðlaun auk einna Brit-verðlauna.