„Væri líklega ekki edrú ef við hefðum ekki skilið“

Ben Affleck.
Ben Affleck. AFP

Hollywoodleikarinn Ben Affleck hefur verið harðlega gagnrýndur eftir ummæli sem hann lét falla um fyrrverandi eiginkonu sína, Jennifer Garner, í útvarpsþættinum The Howard Stern Show á dögunum. 

Affleck hefur glímt við áfengissýki í gegnum tíðina en hefur verið allsgáður síðan hann lauk áfengismeðferð árið 2018, sama ár og þau Garner ákváðu að binda enda á hjónaband sitt til fjölda ára.

Í útvarpsþættinum talaði Affleck um hæðir og lægðir í lífi sínu og sagðist hann sannfærður um að ef þau Garner væru enn gift væri hann líklegast ekki edrú. Lýsti hann áfengissýkinni sem aukaverkun á óhamingju hans í hjónabandinu. Fréttamiðillinn Daily Mail greinir frá.

„Við reyndum að halda hjónabandinu gangandi vegna þess að við eigum börn saman. Mér fannst ég svolítið fastur. Ef við hefðum ekki skilið væri ég líklega enn að drekka,“ er haft eftir Affleck.

Samfélagsmiðlar loga

Ummælin vöktu mikla reiði á samfélagsmiðlum og hafa netverjar látið Affleck fá það óþvegið. „Þú ert fífl. Kennir fyrrverandi konunni þinni um þína eigin óhamingju,“ sagði twitternotandi. 

„Gott að kenna fyrrverandi konunni sinni um drykkjuna. Þú drakkst alveg áður en þú giftist henni,“ tísti annar. „Að tala illa um móður barna þinna gerir þig ekki að góðum föður.“ Eru þetta dæmi um umræðuna sem á sér stað á samfélagsmiðlum en Affleck hefur enn ekki sýnt umræðunni nein viðbrögð né reynt að koma sjálfum sér til varnar.

Líkt og áður hefur komið fram skildu Ben Affleck og Jennifer Garner árið 2018 eftir tæplega 14 ára hjónaband. Ástarævintýri hans og söng- og leikkonunnar Jennifer Lopez hefur ekki farið framhjá neinum en þau tóku aftur upp þráðinn fyrr á árinu og hafa sjaldan verið eins ástfangin og nú. 

Affleck á þrjú börn með fyrrverandi eiginkonu sinni, Jennifer Garner. Hafa þau verið samstiga í barnauppeldinu þrátt fyrir skilnaðinn og reynt að eiga jákvæð samskipti vegna barnanna þriggja, Violet, 15 ára, Seraphinu, 12 ára, og Samuels, 9 ára.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup