Leikkonan Shailene Woodley og NFL-kappinn Aaron Rodgers eru sögð eiga í mjög óhefðbundnu sambandi. Þau eru mikið fyrir að vera út af fyrir sig og vilja ekki birta neitt persónulegt hvort um annað á samfélagsmiðlum.
People hefur þetta eftir heimildamanni sínum eftir að það fréttist að þau hefðu ekki varið afmælisdegi Rodgers, 2. desember, saman. Þá deildi Woodley ekki kveðju á samfélagsmiðlum á afmælisdaginn.
„Þau eru í öðruvísi, óhefðbundnu sambandi. Shailene og Aaron eru saman. Það er ekki skrítið að þau birti ekki neitt hvort um annað á afmælum,“ sagði heimildamaðurinn.
Þykir mörgum það þó skrítið að hún skuli ekki hafa birt neitt um Rodgers á afmælisdegi hans, þar sem hún birti færslu um líkama hans þegar mynd birtist af honum í fjölmiðlum eftir að hann greindi frá því að hann vildi ekki þiggja bóluefni.
Rodgers og Woodley trúlofuðu sig í febrúar á þessu ári.