Tara Wilson, eiginkona leikarans Chris Noths, sást gráta á dögunum. Hún er sögð miður sín eftir að konur stigu fram í desember og sökuðu leikarann úr Beðmálum í borginni um að hafa brotið á sér kynferðislega.
Hjónabandið hékk á bláþræði fyrir jól og virðist sem samband hjónanna hafi ekki skánað á nýju ári. Erlendir slúðurmiðlar birtu myndir af Wilson þurrka tár í bíl í Los Angeles á fimmtudaginn. Eiginkona leikarans var með stór sólgleraugu og faldi líðan sína bak við gleraugun og grímu þegar hún fór út úr bílnum.
Augljóst var að Wilson var ekki með giftingarhringinn þegar hún þurrkaði tárin. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hún sést án giftingarhringsins síðan ásakanir gegn Noth komu fram rétt fyrir jól.
Leikarinn er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Mr. Big í Beðmálum í borginni. Tónlistarkonan Lisa Gentile var fjórða konan til þess að stíga fram og saka Noth um kynferðisbrot fyrir jól. Hún sagði að Noth hefði brotið á sér kynferðislega árið 2002 og hótað að eyðileggja feril hennar ef hún segði nokkrum frá.