Hollywoodstjarnan Sofia Vergara er nær óþekkjanleg í nýju hlutverki. Leikkonan leikur Griseldu Blanco í nýrri þáttaröð um kólumbísku guðmóðurina. Þáttaröðin heitir einfaldlega Griselda.
Netflix deildi mynd af Vergara á Twitter og var glamúrinn sem hefur lengi einkennt Vergara víðsfjarri. Streymisveitan greindi einnig frá því að Modern Family-stjarnan væri að snúa aftur í sjónvarpið.
Vergara tekur þátt í að framleiða þættina en sama teymi stendur að þáttunum og gerðu Narcos þættina vinsælu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem stórstjarna túlkar Blanco en leikkonan Catherine Zeta-Jones lék hana í kvikmyndinni Cocaine Godmother sem kom út árið 2018.
Blanco fæddist árið 1943 í borginni Mdellin í Kólumbíu og vann fyrir sér sem vændiskona frá 12 ára aldri þar til hún flutti til New York um miðjan áttuna áratuginn. Þar hóf hún sölu og dreifingu á fíkniefnum en slapp undan laganna vörðum til Miami þar sem hún kom sér upp gríðarlegu viðskiptaveldi utan um innflutning og sölu á kókaíni. Blanco var fljótlega alræmd fyrir grimmd og morðþorsta en viðurnefnið Svarta ekkjan hlaut hún fyrir að myrða eiginmenn sína þrjá. Blanco var handtekin árið 1985 og framseld til Kólumbíu árið 2004. Hún var skotin til bana árið 2012.
Sofia Vergara stars as Griselda Blanco in a new limited series inspired by the Colombian businesswoman who created one of the most profitable cartels in history, which led to her being known as the “Godmother” — FIRST LOOK: pic.twitter.com/43ftcEZN57
— Netflix (@netflix) January 19, 2022