Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður verður haldin á Ísafirði um páskana, 15.-17. apríl, með hefðbundnu sniði. Hátíðin var blásin af í fyrra og árið 2020 var einungis streymt frá tónleikum.
Kristján Freyr Halldórsson, rokkstjóri Aldrei fór ég suður, greindi frá því á Rás 2 nú fyrir stundu að hátíðin fer fram með hefðbundnu sniði um páskana.
Þrjú tónlistaratriði hafa verið staðfest en það eru Bríet, Hermigervill og hljómsveitin Celebs.
Hátíðin hefur verið haldin óslitið frá árinu 2004, ef undan eru skilin „kórónuárin“.