Suður-kóreski tónlistarmaðurinn Park Ji-min var lagður inn á spítala í Seoul í Suður-Kóreu á sunnudag vegna snarpra verkja í kviði. Á spítalanum greindist hann smitaður af kórónuveirunni og var hann einnig með botnlangabólgu.
Ji-min fór í aðgerð í gær, mánudag og var botnlangi hans fjarlægður.
Ji-min er í hljómsveitinni BTS sem hefur farið sigurför um heiminn undanfarin ár. Hann er fjórði liðsmaður sveitarinnar sem greinst hefur með kórónuveiruna, en alls eru þeir sjö í sveitinni.
RM, Jin og Suga greindust allir með veiruna í desember á síðasta ári, stuttu eftir að sveitin kom heim frá Bandaríkjunum eftir tónleikaferðalag.