Ætlar ekki að hætta með Affleck aftur

Ben Affleck og Jennifer Lopez ætla ekki að hætta saman …
Ben Affleck og Jennifer Lopez ætla ekki að hætta saman í nánustu framtíð. AFP

Leikaraparið Jennifer Lopez og Ben Affleck er alvara með sambandi sínu. Leik- og söngkonan sér ekki fyrir sér að hætta aftur með Affleck en stjörnuparið sleit trúlofun sinni fyrir 18 árum áður en það byrjaði aftur saman í fyrra. 

Lopez er vör um sig og vill ekki tala of mikið um kærastann sinn. „Við höfum þroskast. Við erum sama fólkið og við erum öðruvísi. Það er gott,“ sagði Lopez í viðtali við Rolling Stone að því fram kemur á vef ET. Stjarnan segir þau vita hvað sé raunverulegt og hvað ekki. 

Lopez og Affleck hafa prófað að hætta saman og eru þau reynslunni ríkari. Lopez sér ekki fyrir sér að hætta með Affleck í nánustu framtíð. „Ég held að við hefðum ekki byrjað saman aftur ef við værum á leiðinni þangað,“ sagði hún um samband þeirra. „Okkur finnst eins og það sem við fundum aftur sé svo miklu mikilvægara og hvernig við lifum lífinu okkar, hverju við deilum og hverju við deilum ekki,“ segir Lopez og segir þau hafa lært mikið á reynslu sinni í gegnum árin. 

Ben Affleck og Jennifer Lopez.
Ben Affleck og Jennifer Lopez. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup