Nýjasta stiklan fyrir aðra þáttaröð af Bridgerton var gefin út í gær, Valentínusardag. Stiklan þykir sjóðandi heit og gefa áhorfendum góða hugmynd um hvað sé í vændum.
Fyrsta þáttaröð af Bridgerton sló í gegn þegar hún kom út jólin 2020 og hefur annarrar þáttaraðar verið beðið með mikilli spennu.
Þættirnir eru úr smiðju Shondu Rhimes en þeir byggja á samnefndum bókum Juliu Quinn. Önnur þáttaröð fylgir eftir Anthony Bridgerton sem Jonathan Bailey leikur. Með önnur hlutverk Simone Ashley, Charithra Chandran, Adoja Andoh, Phoebe Dynevor, Luke Thompson, Golda Rosheuvel og Claudia Jessie.
Önnur þáttaröðin fer í loftið 25. mars næstkomandi á streymisveitunni Netflix.