Um leið og bandaríska leikkonan Sydney Sweeney er mjög þakklát fyrir lofsamlega dóma sem hún hefur fengið fyrir frammistöðu sína í satíruþáttunum The White Lotus furðar hún sig á því að menn séu fyrst að veita henni athygli núna.
„Ég er mjög stolt af því sem ég gerði í [þáttunum] Euphoria; fannst ég standa mig mjög vel,“ segir hún í The Independent. „En enginn talar um það vegna þess að ég fór úr fötunum. Þegar karl leikur í kynlífsatriði eða sýnir á sér líkamann vinnur hann samt sem áður til verðlauna og hlýtur lof. En um leið og stúlka gerir slíkt hið sama er það allt annað mál.“