Abba-stjarna skilur eftir 41 árs hjónaband

Björn Ulvaeus og Lena Ulvaeus eru að skilja.
Björn Ulvaeus og Lena Ulvaeus eru að skilja. Reuters

Sænski tónlistarmaðurinn Björn Ulvaeus og Lena Ulvaeus hafa ákveðið að skilja. Björn, sem þekktastur er fyrir að vera einn af liðsmönnum sveitarinnar ABBA, og Lena hafa verið gift frá árinu 1981, eða í 41 ár. Aftonbladet greinir frá.

„Eftir mörg góð og viðburðarík ár saman höfum við ákveðið að halda hvort í sína áttina. Við erum enn nánir og góðir vinir og munum halda áfram að fagna afmælum barnabarna okkar og fjölskylduafmælum saman,“ segir í sameiginlegri tilkynningu frá Birni og Lenu. 

Björn og Lena eiga saman dæturnar Emmu og Önnu. 

Þau giftu sig árið 1981 en þau kynntust í nýárspartíi á heimili Benny Andersson og Annie-Frid Lyngstad árið 1978. Það var aðeins nokkrum dögum eftir að hann hafði skilið við Agnethu Fältskog. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir miklar kröfur til sjálfs þín og annarra og setur sjálfum þér oft ströng skilyrði. Þú þrífst af skoðanaskiptum við starfsfélaga þína og leggur um leið þitt til þeirra mála.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Carin Gerhardsen
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir miklar kröfur til sjálfs þín og annarra og setur sjálfum þér oft ströng skilyrði. Þú þrífst af skoðanaskiptum við starfsfélaga þína og leggur um leið þitt til þeirra mála.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Carin Gerhardsen