„Handritin eru okkar píramídar“

Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Bókamarkaðarins sem opnaður var í morgun.
Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Bókamarkaðarins sem opnaður var í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Við höldum uppteknum hætti frá því í fyrra að safna saman öllum glæpasögum á stórglæsilegt 16 metra langt borð,“ segir Bryndís Loftsdóttir, hjá Félagi íslenskra bókaútgefanda og framkvæmdastjóri Bókamarkaðarins, sem opnaður var í morgun í stúkubyggingunni á Laugardalsvelli og stendur til og með sunnudagsins 13. mars. Sem fyrr er Bókamarkaðurinn opinn alla daga milli kl. 10 og 21. 

Óheilindi, svik og prettir

„Í ár gengur borðið með glæpasögunum undir yfirskriftinni: „Óheilindi, svik og prettir“. Það er Óttarr Proppé, verslunarstjóri Bóksölu stúdenta, sem á heiðurinn af þessu nýja nafni. Það valt alveg fyrirhafnarlaust upp úr honum þegar við ræddum saman um angist mína yfir því hvort kalla ætti þennan flokk krimma, spennu- eða glæpasögur. Ég hreifst svo af nafngiftinni að ég fékk leyfi hjá honum til þess að fá að nota hana. Það var auðfengið enda Óttarr uppeldisfaðir minni í bóksölubransanum frá því ég hóf störf hjá Máli og menningu sumarið 1991. Óheilindi, svik og prettir eru sívinsælt söguefni enda margslungið bókmenntaform sem gjarnan er flokkað niður í um 20 undirflokka. Það rímar skemmtilega við þá staðreynd að í fyrra komu út um 20 nýjar íslenskar glæpasögur sem var nýtt met,“ segir Bryndís.

Alls eru 5.893 titlar skráðir á Bókamarkaðinn í ár, sem skiptast þannig að 32% eru barnabækur, 27% fræðibækur, 15% þýdd skáldverk, 14% íslensk skáldverk, 6% ævisögur og 5% ljóð.

Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda nýtur mikilla vinsælda hjá landanum, enda …
Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda nýtur mikilla vinsælda hjá landanum, enda geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi þar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þjóð veit, ef þrír eru

Að sögn Bryndísar eru merkingar á markaðinum í ár skreyttar með tilvitnunum úr fornsögunum. „Handritin eru okkar píramídar og Panþeon. Handritasafn Árna Magnússonar er á varðveisluskrá UNESCO. En það er eins og við þorum ekki að nota þau og njóta þeirra, til dæmis í kringum ferðamannabransann og í opinberum byggingum. Það segir kannski meira en mörg orð að til að finna þessar tilvitnanir studdist ég meðal annars við norska heimasíðu,“ segir Bryndís og vísar þar til síðunnar https://heimskringla.no/wiki/Fornir_málshættir_og_orðtök.

„Ég þori auðvitað alls ekki að segja frá því að ég fann enga slíka gullorðabók fornsagnanna í íslenskri útgáfu. En mikið óskaplega var oft gaman að tvinna þessa andans snilld saman við þá bókaflokka sem hér er að finna. Ég vona svo sannarlega að þetta verði til þess að einhverjir vinni betur úr þessu efni eða slái um sig með línum sem þeir lærðu á Bókamarkaðinum,“ segir Bryndís. Meðal gullkorna sem rekast má á Bókamarkaðnum eru: „Hann stóð svo vel til höggsins“ úr Fóstbræðra sögu; „Jafnan er hálfsögð saga, ef einn segir“ og „Það verður tamast sem í æskunni nemur“ úr Grettis sögu; „Kemst, þó að seint fari“ úr Njáls sögu; „Oft er gott það er gamlir kveða“, „Vini sínum skal maður vinur vera og gjalda gjöf við gjöf“ og „Þjóð veit, ef þrír eru“ úr Hávamálum; „Skömm er óhófs ævi“ úr Hrafnkels sögu Freysgoða; „Óhægt mun forlögin að flýja“ úr Vatnsdæla sögu; „Fall er fara heill“ og „Sjón er sögu ríkari“ úr Heimskringlu; „Hafa skal gott ráð, þótt úr refsbelgi komi“ úr Þorskfirðingasögu; „Allt kann sá sem hófið kann“ úr Gísla sögu Súrssonar og „Misjöfn eru morgunverkin. Eg hef spunnið tólf álna garn en þú hefur vegið Kjartan“ úr Laxdæla sögu.

Barnabækur vinsælar

Bókamarkaðurinn nú er sá fjórði sem haldinn er síðan heimsfaraldurinn skall á snemma árs 2020 og því liggur beint við að spyrja hvort breyting hafi orðið á bókneyslu landands. „Sala á hannyrðabókum jókst mjög í kjölfar heimsfaraldurs þannig að á markaðinum í fyrra skapaðist hálfgerð þurrð. Það gladdi okkur því mikið að sjá að þó nokkrar nýjar prjónabækur hafa nú bæst á borðin. Við sáum sömuleiðis aukinn áhuga á alls kyns útivistarbókum um Ísland. Þar gætir víðfeðms fróðleiksþorsta hjá lesendum, bækur Ferðafélags Íslands rjúka út í bland við jarðfræði, fuglafræði, sagnfræði og gönguleiðabækur að ógleymdri stórbókinni Flóru Íslands.

Barnabækur njóta alltaf mikilla vinsælda á Bókamarkaðinum og eiga gjarnan um 40% af heildarveltunni. Í fyrra settum við upp sérstakt borð með léttlestrarbókum fyrir 5-9 ára börn. Það gekk ljómandi vel og við stóraukum úrvalið í ár. Það er því tilvalið að leyfa ungum og áköfum lesendum að heimsækja markaðinn og mikilvægt að gefa þeim góðan tíma til þess að skoða og velja sér bækur.“ Þess má að lokum geta að Bókamarkaðurinn verður næst opnaður á Akureyri í september.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Forðastu allar skyndiákvarðanir í fjármálum og gættu þess að hafa þá með í ráðum sem máli skipta. Hikaðu ekki við að bera hugmyndir undir fólk sem þú treystir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Anna Sundbeck Klav
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Colleen Hoover
5
Patricia Gibney
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Forðastu allar skyndiákvarðanir í fjármálum og gættu þess að hafa þá með í ráðum sem máli skipta. Hikaðu ekki við að bera hugmyndir undir fólk sem þú treystir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Anna Sundbeck Klav
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Colleen Hoover
5
Patricia Gibney