Leikkonan Emma Roberts gaf barnsföður sínum, leikaranum Garrett Hedlund, marga sénsa en hún hætti með honum eftir áramót. Roberts og Hedlund eiga saman eins árs gamalt barn.
Heimildarmaður Us Weekly greinir frá því að Roberts og Hedlund vinni vel saman sem foreldrar þrátt fyrir að þau eigi ekki framtíð saman sem par. „Garrett og Emma eiga í góðu foreldrasamstarfi. Þegar hann er edrú er hann frábær gaur og þau hafa átt í góðum samskiptum.“ Heimildarmaðurinn tók fram að leikarinn hafi átt í fíknivanda að stríða í mörg ár.
Heimildarmaðurinn sagði að Roberts hafi sett barnsföður sinnum marga afarkosti áður en hún hætti með honum. Vildi sá sem þekkti til meina að þau hefðu ákveðið að skilja sem vinir.