Samkomulag við Evrópsku kvikmyndaakademíuna um Evrópsku kvikmyndaverðlaunin var undirritað í Höfða í dag.
Hátíðin er haldin annað hvert ár í Berlín en þess á milli til skiptis í öðrum borgum Evrópu. Reykjavík varð fyrir valinu að þessu sinni og verður hátíðin haldin í Hörpu 10. desember.
Til stóð að halda hátíðina hér á landi í desember 2020 en vegna heimsfaraldurs var henni frestað.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar og menningar- og viðskiptaráðuneytinu.
Matthijs Wouter Knol, forstjóri Evrópsku kvikmyndaakademíunnar, var viðstaddur undirritunina.
Gert er ráð fyrir um 1.200 gestum á hátíðina frá allri Evrópu og von er á 200 erlendum blaðamönnum til Íslands.
Bein útsending verður frá verðlaunakvöldinu í Hörpu sem mun ná til fjölmargra Evrópulanda.
„Það er mikill heiður fyrir Reykjavík að taka þátt í þessu stóra verkefni sem Evrópsku kvikmyndaverðlaunin eru. Við hlökkum til að taka á móti erlendum gestum og sýna þeim allt það sem borgin hefur upp á að bjóða,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri.
„Með glæsilegri hátíð og hliðarviðburðum sem henni fylgja fáum við mikilvægt tækifæri til að markaðssetja menningarborgina Reykjavík, kvikmyndaborgina Reykjavík og skapandi greinar almennt,“ bætir hann við.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, segir þetta spennandi tækifæri fyrir íslenska kvikmyndamenningu og að viðburðurinn muni skapa töluverðar gjaldeyristekjur. Þá sé markmið að sýna fram á grænar lausnir í kvikmyndaáherslum.