Sænska fyrirsætan Elsa Hosk prýðir forsíðu Vogue Scandinavia í maí og apríl. Hosk er allsnakin á forsíðunni ásamt eiginmanni sínum Tom Daly og dóttur þeirra. Hosk á að bak yfir tvo áratugi í tískubransanum en segir forsíðuna einstaka fyrir sig.
„Á tveggja áratugalöngum ferli sínum hélt sænska ofurfyrisætan Elsa Hosk að hún hefði gert allt undir sólinn. Það er, þangað til við buðum henni að sitja fyrir nakin á forsíðunni okkar ásamt fjölskyldunni sinni,“ segir á Instagram-síðu Vogue Scandinavia.
Sjálf segir Hosk á sinni Instagram síðu að henni hafi aldrei liðið jafn vel og í myndatökunni. „Í líkama mínum, á þessari forsíðu, með ástunum mínum tveimur, í starfinu mínu,“ sagði Hosk.