Brotist inn hjá Beckham-fjölskyldunni

David og Victoria Beckham.
David og Victoria Beckham. AFP

Beckham-fjölskyldan varð fyrir barðinu á innbrotsþjófi á dögunum. Talið er að innbrjótsþjófurinn sé einn liðsmanna afbrotaklíku sem braust inn í að minnsta kosti tvö önnur hús á svæðinu á sama tíma. 

David, Victoria og dóttir þeirra, Harper Beckham, voru í fasta svefni þegar innbrotsþjófurinn lét til skarar skríða. Þjófurinn er sagður hafa farið inn um glugga á svefnherbergi á efri hæð hússins á meðan þríeykið svaf sínu værasta á neðri hæðinni. 

Fjölskyldan býr í glæsihýsi í London, höfuðborg Bretlands. Heimili fjölskyldunnar er staðsett skammt frá Holland Park-garðinum við ríkra manna hverfið í Kengsington og er metið á 40 milljónir punda. 

Innbrotið uppgötvaðist ekki fyrr en sonur þeirra, Cruz, kom heim eftir að hafa verið úti að skemmta sér umrædda nótt. Þegar Cruz kom heim tók hann eftir brotnum glugga og varð hann var við glerbrot um allt. Innbrotsþjófurinn lét greipar sópa og hafði á brott með sér mikið magn af verðmætum ef marka má frétt frá Daily Mail

Sögur herma að David hafi rakleiðis hringt í neyðarlínuna og hófust þeir feðgar handa við að leita þjófinn uppi og freistuðu þess að handsama hann áður en Lögreglan kæmi á staðinn. Það fór hins vegar ekki svo og hefur enginn verið handtekinn enn fyrir innbrotið. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki besti tíminn til að sýna frumkvæði í vinnunni. Vertu víðsýnn og gefðu skoðunum annarra gaum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lucinda Riley og Lucinda Riely
3
Eppu Nuotio
4
Sofie Sarenbrant
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki besti tíminn til að sýna frumkvæði í vinnunni. Vertu víðsýnn og gefðu skoðunum annarra gaum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lucinda Riley og Lucinda Riely
3
Eppu Nuotio
4
Sofie Sarenbrant
5
Birgitta H. Halldórsdóttir