Leikkonan Jada Pinkett Smith er ekki reið út í eiginmann sinn, leikarann Will Smith. Hún er þó ekki ánægð með atvikið á Óskarnum í síðustu viku. Leikarinn hljóp upp á svið og sló grínistann Chris Rock á Óskarsverðlaunahátíðinni eftir að hann sagði ósmekklegan brandara um Pinkett Smith.
„Þetta gerðist í hita leiksins og hann brást of harkalega við. Hann veit það, hún veit það. Þau eru sammála um að hann brást of harkalega við,“ segir heimildarmaður Us Weekly.
Pinkett Smith hefði viljað að eiginmaður sinn hefði sleppt því að bregðast við með líkamlegu ofbeldi.
Leikarinn hefur verið gagnrýndur fyrir hegðun sína og sumir vinir hans skammast sín. Nánustu vinir hans hafa verið til staðar fyrir hann að því fram kemur á vef ET og senda honum skilaboð. Hann er talinn þurfa að vinna í sér. „Þeim finnst hann þurfa að taka sér frí frá leiklistinni, fara í meðferð og vinna í vandamálum sínum.“
Jada Pinkett Smith hafa það gott miðað við allt. „Fjölskyldan er að vinna sig í gegnum þetta allt,“ segir annar heimildarmaður ET. „Þau eru sterk fjölskylda og þau styðja Will 100 prósent.“
Kveikjan að uppþotinu var brandari Rock en hann vísaði til eiginkonu Smiths, leikkonunnar Jödu Pinkett Smith, sem G.I. Jane, sem er persóna í samnefndri kvikmynd frá 1997. Leikkonan Demi Moore fer þar með hlutverk G. I. Jane en hún er sköllótt.
Pinkett Smith er einnig sköllótt um þessar mundir. Leikkonan hefur glímt við sjálfsofnæmissjúkdóminn alopecia sem veldur meðal annars skallablettum. Ákvað hún því að krúnuraka sig og hefur borið höfuðið hátt á rauða dreglinum síðan.