Löðrungurinn hefur áhrif á alla í fjölskyldunni

Kinnhesturinn hefur verið stór biti að kyngja fyrir nánustu vini …
Kinnhesturinn hefur verið stór biti að kyngja fyrir nánustu vini og fjölskyldu Wills Smiths. AFP

Löðrungurinn sem leikarinn Will Smith veitti grínistanum Chris Rock á Óskarsverðlaunahátíðinni í lok mars hefur dregið dilk á eftir sér. Ekki bara í vinnuumhverfi Smiths í Hollywood heldur líka fyrir hans nánustu vini og fjölskyldu. 

„Þetta hefur verið martröð fyrir alla,“ sagði ónefndur heimildamaður Us Weekly sem er náinn fjölskyldunni. Hann sagði Smith gera sér grein fyrir að hann hafi ekki enn fengið æru sína uppreista eftir atvikið og að hann væri meðvitaður um að öll sár myndu ekki gróa alfarið. 

Eiginkona hans, Jada Pinkett Smith, sonur hans Jaden og dóttir hans Willow, hafa öll forðast að tjá sig um málið opinberlega til að forðast enn meiri athygli. „Þau vita að það besta í stöðunni er að halda kjafti. Það eina sem vinnur með þeim er tíminn,“ sagði heimildamaðurinn. 

Eins og frægt er orðið veitti Smith Rock kinnhest uppi á sviði á Óskarsverðlaunahátíðinni. Gerði hann það í kjölfarið að Rock sagði brandara um eiginkonu hans. Viðbrögð Smiths hafa verið harðlega gagnrýnd. Seinna um kvöldið hlaut Smith verðlaun í flokki leikara í aðalhlutverki fyrir kvikmyndina King Richard. 

Þegar hann tók við verðlaununum baðst hann afsökunar á hegðun sinni, en nefndi þó Rock aldrei á nafn. 

Will Smith og Jada Pinkett Smith áður en atvikið á …
Will Smith og Jada Pinkett Smith áður en atvikið á Óskarnum átti sér stað. AFP/ VALERIE MACON
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert þar sem þú átt að vera. Haltu ótrauður áfram, þú finnur lykilinn að hamingjunni á ólíklegustu stöðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Carla Kovach
3
Kolbrún Valbergsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert þar sem þú átt að vera. Haltu ótrauður áfram, þú finnur lykilinn að hamingjunni á ólíklegustu stöðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Carla Kovach
3
Kolbrún Valbergsdóttir