Söngkonan Britney Spears er barnshafandi. Þessu greinir hún frá á Instagram.
Í færslunni opnar hún sig um að hún hafi þjáðst af meðgönguþunglyndi en ekki getað greint frá því. Hún segist forðast það að vera mynduð ljósmyndurum slúðurblaðamiðla vegna þess hversu fast þeir sóttu að henni í sinni síðustu meðgöngu, þegar henni leið illa.
Britney hlaut nýlega sjálfræði að nýju gat þar að leiðandi tekið sjálf ákvarðanir um getnaðarvarnir og/eða hvort að hún vilji eignast fleiri börn.
Britney er trúlofuð Sam Asghari, sem er 28 ára.