Siggi Gunnars ráðinn tónlistarstjóri Rásar 2 

Siggi Gunnars hefur ráðið sig yfir til Rásar 2.
Siggi Gunnars hefur ráðið sig yfir til Rásar 2.

Sigurður Þorri Gunnarsson hefur verið ráðinn tónlistarstjóri Rásar 2 en hann var áður  dagskrástjóri útvarpsstöðvarinnar K100.  

„Sigurður er menntaður fjölmiðlafræðingur frá Háskólanum á Akureyri og með meistaragráðu í fjölmiðlafræði með áherslu á útvarp frá Háskólanum í Sunderland á Englandi. Hann hefur unnið hjá Árvakri síðan 2017 og fyrir utan störfin í útvarpinu hefur hann meðal annars  skrifað fréttir tengdar tónlist og afþreyingu og stýrt vinsælum bingóþáttum á mbl.is,“ segir í fréttatilkynningu frá RÚV. 

Í samtali við Rás 2 segir Sigurður, eða Siggi Gunnars eins og landsmenn þekkja hann, að almannaútvarp hafi verið sér verið hugleikið lengi.

„Bæði B.A. ritgerðin mín og M.A. verkefnið mitt fjölluðu einmitt um hlutverk almannaútvarps og í meistaranáminu í Bretlandi lagði ég sérstaka áherslu á að kynna mér vel útvarpshluta BBC.“ 

Hann segir um leið að það sé „sannkallað draumastarf að koma að rekstri vinsælustu útvarpsstöðvar landsins, vinna með íslensku tónlistarfólki og fá tækifæri til að kynna helstu strauma og stefnur í tónlist.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Með réttu lagi ættir þú að koma málum þínum heilum í höfn. Ekki gefast upp á því að ná markmiðum þínum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Colleen Hoover
4
Snæbjörn Arngrímsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Með réttu lagi ættir þú að koma málum þínum heilum í höfn. Ekki gefast upp á því að ná markmiðum þínum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Colleen Hoover
4
Snæbjörn Arngrímsson