Einn karlmannanna sem seldi rapparanum Mac Miller fíkniefni sem leiddu til dauða hans hefur verið dæmdur í 10 ára og 11 mánaða fangelsi. Maðurinn, sem heitir Ryan Reavis, er einn þriggja sem hafa verið ákærðir fyrir andlát Millers.
Reavis játaði fyrir dómara að hann hafi selt lyfið fentanyl til rapparans. Miller lést vegna ofskömmtunar í september árið 2018. Hafði hann þá talið sig hafa keypt lyfið oxycondone, en án hans vitundar var fentanyl blandað í töflurnar. Ópíóðalyfið fentanyl er fimmtíu sinnum sterkara en oxycondone og meðal annars gefið krabbameinsveikum.
Samkvæmt heimildum Rolling Stone óskaði Reavis eftir fimm ára fangelsisdómi fyrir brot sitt og sagðist aðeins hafa verið milligöngumaður. Hann hafi ekki vitað að fentanyli hafi verið blandað í töflurnar. Ákæruvaldið fór fram á tólf og hálfs árs fangelsisdóm yfir hinum ákærða.
Annar maður viðriðinn andlát Millers hefur játað sekt sína í málinu. Stephen Walters játaði í nóvember á síðasta ári að hafa selt rapparanum fíkniefni. Hann hefur enn ekki hlotið dóm.