Leikarinn Jared Padalecki er heppinn að vera á lífi eftir að hafa lent í slæmu bílslysi nýverið. Mótleikari hans í Supernatural, Jensen Ackles, sagði frá slysinu á Supernatural-viðburði um helgina.
„Ég sakna vinar míns. Hann sendir ykkur ástarkveðjur. Ég talaði við hann í gær. Ég veit ekki hvort þið vitið hvað er í gangin. Hann lenti í mjög slæmu bílslysi. Hann var ekki að keyra, hann var í farþegasætinu, og er heppinn að vera á lífi,“ sagði Ackles.
Leikarinn bætti við að Padalecki væri kominn heim til sín af spítalanum og að það væri magnað að hann væri kominn heim.