Systur stíga á svið í kvöld á fyrra undanúrslitakvöldi Eurovision í Tórínó. Aðeins tíu lög komast upp úr fyrri riðlinum en úrslitin fara fram á laugardagskvöldið. Ísland er í riðli með Úkraínu sem er spáð sigri í ár.
Systur með lagið Með hækkandi Sól eru númer 14 í röðinni af 17 löndum. 18 lög taka þátt í seinni undanúrslitariðlinum á fimmtudaginn. Úkraína með lagið Stefania er sjötta landið. Ef þú vilt ekki missa af hápunkti kvöldsins (og kannt ekki á tímaflakkið) skaltu poppa og fara á klósettið áður en austurríski keppandinn lýkur flutningi sínum en hann er á undan Íslandi.
Símakosning ásamt stigagjöf dómara ræður því hvaða lönd komast áfram. Þau lönd sem eru með Íslandi í riðli geta kosið Ísland áfram. Oftast nær hafa Norðurlöndin verið góð hvort við annað en Noregur og Danmörk eru með Íslandi í riðli.
Það verður að teljast öruggt að Úkraína komist áfram. Grikklandi, Noregi og Hollandi hefur einnig verið spáð góðu gengi. Ísland hefur ekki flogið hátt í veðbönkum en söngur systranna á vonandi eftir að heilla áhorfendur í Evrópu sem og dómnefndirnar í hverju landi fyrir sig.