Stórleikarinn Jason Momoa er kominn með kærustu. Nýja kærastan heitir Eiza González og er leikkona. Momoa og eiginkona hans, leikkonan Lisa Bonet, greindu frá því í janúar sl.að þau væru að skilja eftir tæplega 17 ára samband.
„Þau eru að hittast. Honum þykir vænt um hana. Hann er á frábærum stað, er að vinna að Fast X,“ sagði aðili sem þekkir til í viðtali á vef People. „Hann er frekar upptekinn og í góðu jafnvægi.“
Heimildarmaður sem þekkir til þeirra beggja tjáði sig um sambandið. „Þau eru bæði upptekin í vinnu og eru að skemmta sér. Þetta er ekkert alvarlegt, enn sem komið er.“
Leikarinn mætti á frumsýningu myndarinnar Ambulance í Los Angeles í byrjun apríl. González fer með stórt hlutverk í myndinni en leikarinn Momoa mætti þó ekki formlega með leikkonunni á rauða dregilinn.
Það kom mörgum á óvart þegar leikarahjónin Momoa og Bonet greindu frá skilnaði sínum í byrjun árs. Tólf ár eru á milli hjónanna. Þau kynntust í gegnum sameiginlega vini á djassklúbbi árið 2005. Saman eiga þau tvö börn, fædd árin 2007 og 2008.