Andrea Bocelli mun syngja í brúðkaupsveislu Kourtney Kardashian og Travis Barkers í kvöld.
Hann steig á svið í Kórnum í Kópavogi í gærkvöldi, ásamt 70 manna sinfóníuhljómsveit og kór. Er hann á tónleikaferðalagi um Evrópu um þessar mundir og næstu tónleikar hans verða í Þýskalandi hinn 27. maí.
Brúðkaupsveislan er haldin í Portofino á Ítalíu. Andrea Bocelli verður þar ásamt eiginkonu sinni Victoriu Bocelli, en samkvæmt heimildum People mun hann einnig skemmta veislugestum.