Raunveruleikastjörnunni Caitlyn Jenner var ekki boðið í brúðkaup Kourtney Kardashian og Travis Barker á Ítalíu um helgina.
Caitlyn Jenner var gift Kris Jenner, móður Kourtney, í mörg ár. Það vantaði fleiri úr Kardashian- fjölskyldunni í brúðkaupið en bróðir hennar, Rob Kardashian, var líka fjarri góðu gamni.
Jenner fékk ekki boð í brúðkaupið á Ítalíu og að sögn heimildarmanna TMZ eiga þær ekki í nánu sambandi. Hjónin hafi viljað að athöfnin og veislan væru aðeins fyrir nánasta fólkið þeirra og svo virðist sem Jenner sé ekki í þeim hóp.
Barker-hjónin stefna á að halda veislu í Los Angeles líka, kannski fær hún boðskort í það.
Rob Kardashian er ekki mikið fyrir sviðsljósið eins og systur hans. Að sögn heimildarmanns Page Six sá hann sér ekki fært að mæta sökum myndavélaumstangs í kringum fjölskylduna. Hann fékk þó boð en ákvað að þiggja það ekki.