Leikarinn Johnny Depp tróð upp í Royal Albert Hall í Lundúnum í vikunni ásamt tónlistarmanninum Jeff Beck. Depp hefur nú troðið upp með Beck þrjú kvöld í röð en aðeins nokkrir dagar eru síðan dómshaldi í meiðyrðamáli hans gegn fyrrverandi eiginkonu hans, leikkonunni Amber Heard, lauk í Bandaríkjunum.
Samkvæmt heimildarmanni mbl.is sem var staddur í Royal Albert Hall voru aðdáendur Beck heldur betur spenntir að sjá Depp með tónlistarmanninum og kölluðu aðdáendur sífellt til hans upp á sviðinu.
Depp bíður nú örlaga sinna en kviðdómarar eru með meiðyrðamál hans í höndunum.