Styttist í brúðkaup Britney Spears

Britney Spears og Sam Asghari.
Britney Spears og Sam Asghari. Skjáskot/Instagram

Tónlistarkonan Britney Spears mun ganga í hið heilaga með unnusta sínum, Sam Asghari á næstu dögum. Samkvæmt heimildarmönnum TMZ verður gestalistinn ekki langur, en búist er við rúmlega 100 manns í brúðkaupinu. Heimildir herma að bróðir Spears muni koma, en móðir, faðir og systir Spears munu ekki koma. Það er því óljóst hver muni fylgja Spears að altarinu. 

Asghari bað Britney í september 2021, en í Apríl tilkynnti parið að þau ættu von á barni. Mánuði síðar deildu þau tilfinningaþrungnum pósti á samfélagsmiðlum sínum þar sem þau tilkynntu fósturmissi.

Parið hefur unnið hörðum höndum að því að plana brúðkaupið síðastliðna mánuði, en í mars sýndi Spears frá heimsókn til fatahönnuðarins Donatella Versace og orðrómur fór í kjölfarið af stað um að hún komi að hönnun brúðarkjóls Spears. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Láttu það ekki setja þig úr jafnvægi, þótt eitt og annað gangi á í kring um þig. Mundu að horfa á það jákvæða í lífinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Ragnheiður Gestsdóttir
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Láttu það ekki setja þig úr jafnvægi, þótt eitt og annað gangi á í kring um þig. Mundu að horfa á það jákvæða í lífinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Ragnheiður Gestsdóttir
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup