Komin á fast eftir sambandsslitin

Olivia Rodrigo og Zack Bia.
Olivia Rodrigo og Zack Bia. Samsett mynd

Tónlistarkonan Olivia Rodrigo er komin á fast. Sá heppni heitir Zack Bia og er plötusnúður og stofnandi plötuútgáfufyrirtækis. 

Parið sást fyrst saman í desember 2021 þegar þau snæddu kvöldverð í Santa Monica, Kaliforníu. Á þeim tíma sagði Bia að þau væru þó aðeins vinir. Það var ekki fyrr en á ofurskálinni, sem haldin var í febrúar sem parið byrjaði saman samkvæmt heimildarmanni People. „Þau eru mjög hrifin hvort af öðru.“ 

Rodrigo var áður með pródúsentinum Adam Faze, en þau hættu saman í ársbyrjun eftir nokkurra mánaða samband. 

Hin 19 ára Rodrigo hefur slegið í gegn í tónlistarheiminum. Hún var tilnefnd til sjö Grammy-verðlauna fyrr á árinu og hlaut þrjú verðlaun, en hún var meðal annars valin besti nýliðinn og fékk verðlaun fyrir bestu popp-plötuna.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér er að takast að koma skikki á hlutina og átt hrós skilið fyrir allt það erfiði sem þú hefur lagt á þig. Mundu að vinir og vandamenn eru sú stoð sem gott er að hafa.
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér er að takast að koma skikki á hlutina og átt hrós skilið fyrir allt það erfiði sem þú hefur lagt á þig. Mundu að vinir og vandamenn eru sú stoð sem gott er að hafa.
Loka