Nektin pirrar fjölskyldumeðlimi

Hin glæsilega Lizzo sýnir kroppinn á Instagram.
Hin glæsilega Lizzo sýnir kroppinn á Instagram. Skjáskot/Instagram

Tónlistarkonan Lizzo er óhrædd við að birta djarfar myndir af sér á Instagram reikningi sínum, en hún segir myndbirtingarnar oft hafa valdið uppnámi meðal fjölskyldumeðlima hennar. Lizzo er þekkt fyrir að koma til dyranna eins og hún er klædd og vill að allir líkamar fái að njóta sín. 

Lizzo fór á rúntinn með James Corden í gærkvöldi þar sem þau spjölluðu saman og sungu nokkur lög hennar. James Corden er þáttastjórnandi The Late Late Show og er rúnturinn, sem er betur þekktur sem Carpool Kareoke, innslag í þáttunum.

Þegar söngkonan byrjaði að gefa út tónlist og blóta í lögum sínum segir hún það hafa valdið fjaðrafoki í fjölskyldunni. „Pookie frændi minn verður oft reiður út í mig. Hann hringir í mömmu mína og segir: „Hey Melissa, farðu í föt“,“ sagði Lizzo, sem heitir fullu nafni Melissa Viviane Jefferson.

View this post on Instagram

A post shared by Lizzo (@lizzobeeating)

Þau enduðu rúntinn svo á nokkrum danssporum, en lög Lizzo eru vinsæl á samfélagsmiðlinum TikTok. Hún kenndi Corden spor við lagið About Damn Time sem hefur notið mikilla vinsælda.  

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Tafir, ruglingur og samskiptaörðugleikar í vinnunni munu setja svip sinn á þennan mánuð. En aðrir sjá ekki öll mál í sama ljósi og þá er það þolinmæðin sem gildir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Tafir, ruglingur og samskiptaörðugleikar í vinnunni munu setja svip sinn á þennan mánuð. En aðrir sjá ekki öll mál í sama ljósi og þá er það þolinmæðin sem gildir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar