Leikkonan Cameron Diaz hefur ákveðið að snúa aftur til starfa. Hún tilkynnti heiminum að hún væri hætt að leika árið 2018 en hún hafði þá ekki leikið í fjögur ár. Netflix greindi frá því á dögunum að hún að hún væri að snúa aftur og væri að leika í kvikmyndinni Back in Action sem veitan er að framleiða.
Leikarinn Jamie Foxx er sagður sá sem sannfærði Diaz um að snúa afur. Þau léku saman í myndinni Annie fyrir átta árum og sameinast aftur á skjánum í þessari mynd. Það er ekki vitað nákvæmlega um hvað myndin er, út frá titlinum má áætla að þau verði bæði í frábæru formi í myndinni.
„Ég er mjög spennt, en ég veit ekki hvernig ég á að gera þetta,“ sagði Diaz.
Foxx tók upp samtal á milli þeirra Diaz þar sem hann fékk ameríska–fótboltakappann Tom Brady til að aðstoða hana með að tilkynna að hún væri að snúa aftur. Brady hefur nokkrum sinnum sagst vera hættur í amerískum fótbolta en snýr svo alltaf aftur og ætti því að luma á góðum ráðum.
Hann birti samtalið á Twitter þar sem hann skrifaði „Cameron ég vona að þú sért ekki reið en ég tók þetta upp, getur ekki hætt við núna“.
Thanks @TomBrady for the assist https://t.co/PeD4mfqntM
— Jamie Foxx (@iamjamiefoxx) June 29, 2022