Leikkonan Lindsay Lohan og fjármálamaðurinn Bader Shamas eru orðin hjón. Parið hefur verið trúlofað síðan í nóvember á síðasta ári. Lohan greindi frá giftingunni á Instagram á 36 ára afmælinu sínu um helgina.
Parið hefur verið saman í þrjú ár og búa í Dubaí þar sem þau kynntust. Leikkonan flutti þangað 2018 til að hefja nýtt líf.
„Ég er heppnasta kona í heimi. Ég er gáttuð á því að þú sért eiginmaður minn. Þú ert allt líf mitt. Hverri einustu konu á að líða svona á hverjum degi,“ segir hin nýgifta Lohan.