Frægustu konur Bandaríkjanna, þar á meðal Kim Kardashian, Katy Perry og Jessica Chastain, létu lítið fara fyrir veisluhöldum á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna á samfélagsmiðlum sínum í gær. Ástæðan er nýfallinn dómur Hæstaréttar Bandaríkjanna er varðar réttinn til þungunarrofs.
Margar stjörnur, þar á meðal Kardashian fjöls deildu færslu frá tískuhönnuðinum Anitu Elizabeth Bitton sem skrifaði í færslu á sunnudag að slaufa ætti 4. júlí vegna skorts á sjálfstæði kvenna.
Dómur hæstaréttar hefur verið efst á baugi í fréttaumfjöllun í Bandaríkjunum en með dóminum var víðfrægum dómi, Roe gegn Wade frá árinu 1973, snúið við. Dómur sá hafði tryggt konum réttinn til þungunarrofs í öllum ríkjum Bandaríkjanna.
Tónlistarkonan Katy Perry vísaði í lag sitt Firework í gær. „Elskan þú ert eins og flugeldar, er lag með tíu í einkunn, en konur í Bandaríkjunum hafa færri réttindi en ragetta,“ skrifaði tónlistarkonan.
“Baby you’re a firework” is a 10 but women in the US have fewer rights than an actual sparkler smh
— KATY PERRY (@katyperry) July 4, 2022
Myndmálið í færlsu leikkonunnar Jessicu Chastain var skýrt á Twitter. „Gleðilegan „sjálfstæðis“dag frá mér og réttinum yfir mínum eigin líkama,“ skrifaði hún við mynd af sér.
Happy “Independence” Day from me and my reproductive rights. pic.twitter.com/GoIuu4JhAq
— Jessica Chastain (@jes_chastain) July 4, 2022
Leikkonan Zooey Deschanel birti mynd af sér í bol sem á stendur að hún sé fylgjandi Roe gegn Wade dóminum.
Leikkonan og baráttukonan Jameela Jamil lét einnig í sér heyra. „Sjálfstæðisdagur, nema ef þú ert með leg. Þá máttu fokka þér og okkur er alveg sama þó þú deyir, nema við fáum að rugla í allri þinni framtíð og andlegri heilsu,“ skrifaði hún.