Leikkonan Amanda Bynes og Paul Micheal hafa slitið trúlofun sinni. Parið er þó enn saman. Það hefur gengið á miklu hjá þeim Bynes og Michael og því hafa þau ákveðið að setja öll plön um giftingu á ís. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem parið slítur trúlofun.
Parið kynntist á AA-fundum árið 2020 og trúlofaði sig nokkrum mánuðum seinna. Þremur vikum eftir þá trúlofun slitu þau henni og hættu saman en náðu aftur saman eftir það.