Ofurhetjumyndin Thor: Love and Thunder skilaði mestum miðasölutekjum um helgina vestan hafs en samtals hefur kvikmyndin, sem frumsýnd var í síðustu viku, hagnast um rúmlega 190 milljón dollurum í Norður Ameríku. Fyrstu vikuna hagnaðist myndin um 144 milljón dollara.
Á hæla hennar kemur teiknimyndin Minions: The Rise of Gru, en aðsókn ungmenna í jakkafötum í kvikmyndahús víðs vegar um heiminn á kvikmyndina hefur verið talsvert í umræðunni hér á landi sem og annars staðar í heiminum. Í þriðja sæti er kvikmyndin Where the Crawdads Sing sem er byggð á samnefndri skáldsögu og í fjórða er Top Gun: Maverick, en um framhaldsmynd af hinni geysivinsælu 80‘s mynd Top Gun er að ræða.