Söngkonan Beyoncé mun taka aftur upp lag á nýjustu plötu hennar vegna orðanotkunar sem hefur sætt gagnrýni á meðal baráttufólks fyrir réttindum fatlaðra.
Lagið Heated er á plötu Beyoncé, Renaissance, sem kom út a föstudaginn. Í textanum kemur fram orðið spastískur (e. spaz) sem sumir telja vera niðrandi orð yfir þá sem eru með spastíska heilalömun.
Talsmaður Beyoncé sagði við BBC að orðið hefði ekki sömu merkingu í Bandaríkjunum og í Bretlandi og að söngkonan hafi ekki notað orðið til þess að niðurlægja neinn viljandi. Þá bætti hann við að orðið yrði tekið úr textanum og lagið tekið upp aftur.
Einungis eru nokkrar vikur síðan að söngkonan Lizzo tók aftur upp lagið sitt GRRRLS, vegna notkunar á orðinu.
Hannah Diviney, baráttukona fyrir réttindum fatlaðra, sagði í samtali við BBC að texti Beyoncé væri eins og að fá kinnhest þar sem svo stutt er síðan hún benti á orðanotkunina í texta Lizzo.