Systurnar Wynonna og Ashley Judd eru ekki í erfðaskránni sem móðir þeirra, tónlistarkonan Naomi Judd, gerði fyrir andlát sitt. Eftirlifandi eiginmaður hennar Larry Strickland erfir hana og hefur stjórn yfir öllum eigum hennar. Page Six greinir frá.
Judd tók sitt eigið líf hinn 30. apríl síðastliðinn
Í erfðaskránni segir að Strickland eigi að sjá um allt sem við kemur dánarbúinu og fær greitt fyrir vinnu sína. Judd gerði síðast breytingar á erfðaskrá sinni hinn 20. nóvember árið 2017, tæpum fimm árum fyrir andlát sitt.