Fyrrverandi hafnaboltakappinn Alex Rodriguez lét lítið á sér bera á afmæli sínu, en hann varð 47 ára 27. júlí síðastliðinn og eyddi afmælisdeginum í golfi í Idaho í Bandaríkjunum.
Samkvæmt heimildarmanni People var fögnuðurinn lágstemmdur. „Hann fór með vinum og fjölskyldu í kvöldverð, golf, gönguferðir og bátsferðir á vatninu.“ Þrátt fyrir það sáust stjörnur á borð við Justin og Hailey Bieber, Mark Wahlberg og Reese Witherspoon fagna með Rodriguez, ásamt kærustu hans, Kathryne Padgett.
Rodriguez var áður trúlofaður söngdívunni Jennifer Lopez, en leiðir þeirra skildi í ársbyrjun 2021 eftir fjögurra ára samband. Sambandsslitin virtust taka verulega á Rodriguez, en Lopez er nú trúlofuð leikaranum Ben Affleck.