Raunveruleikastjarnan Mama June gekk í hjónaband með Justin Stroud hinn 23. mars síðastliðinn, en þá hafði parið verið saman í sex mánuði. Þetta staðfestu þau í myndskeiði sem birt var á Instagram reikningi hennar og var það í fyrsta sinn sem parið sagði frá giftingunni.
„Við erum hér í dag til að tala um sögusagnir. Við erum ekki lengur á markaðnum,“ sagði Mama June í myndskeiðinu og sýndi glitrandi giftingarhring á fingri sínum. Þá sögðu hjónin að frekari smáatriði úr sambandi þeirra myndu birtast í þáttunum WE og sögðu aðdáendum að bíða spennt. „Þú munt ekki vilja missa af því hvernig ástarsaga okkar byrjaði,“ bætti hún við.
Mama June er þekktust fyrir hlutverk sitt í raunveruleikaþáttunum Mama June: From Not to Hot sem komu út árið 2017. Hún var áður með Gano Doak, en hann var handtekinn fyrir vörslu fíkniefna og dæmdur til fangelsisvistar á síðasta ári. Mama June var handtekin með honum, en hún var þó ekki dæmd í fangelsi heldur gert að fara í meðferð.