Sænsk-breska sjónvarpskonan, Ulrika Jonsson, eyddi helginni í að baða sig í sólinni ef marka má sögu hennar á Instagram. Mikil hlýindi hafa verið á Buckingham-svæðinu á Bretlandi síðustu vikur og hefur Jonsson nýtt veðurblíðuna vel í bakgarði heimilis síns.
Jonsson á afmæli síðar í mánuðinum og mun hún fagna 55 árunum hinn 16. ágúst, næstkomandi. Hefur hún aldrei látið aldurinn stoppa sig en Instagram-reikningur hennar er lifandi sönnun þess að Jonsson heldur fast í æskuljómann, enda lítur hún mjög vel út miðað við aldur.
Á meðan Jonsson sleikti sólina og lét fara vel um sig í bakgarðinum deildi hún seiðandi myndum af sólarkysstum líkama sínum í sögu á Instagram. Þar má sjá hana liggja á sólbekk í hvítum sundfatnaði sem fór vel við húðflúrin sem hana prýða víðs vegar um líkamann.
Ulrika Jonsson er móðir fjögurra barna en þau á hún með fjórum mönnum. Elsti sonur Jonssons og fyrrverandi eiginmanns hennar, John Turnbull, er Cameron Oscar George Turnbull, fæddur 1994.
Næst í röðinni er hin 22 ára Bo Eva Coeur Jonsson sem vill ekki vera við föður sinn, Markus Kempen, kennd. Martha Sky Hope Gerrard-Wright er þriðja barnið í systkinaröðinni en hana eignaðist Jonsson með fyrrverandi eiginmanni sínum, Lance Gerrard-Wright.
Jonsson stendur í skilnaði við þriðja eiginmann sinn um þessar mundir, Brian Monet, en þau eiga eitt barn saman, Malcom Monet, sem er 14 ára gamall.