Drulluhlaup Krónunnar verður haldið í fyrsta sinn laugardaginn 13. ágúst að Íþróttamiðstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ.
Hlaupaleiðin er samtals 3.5 kílómetar og þurfa þátttakendur að yfirstíga fjölmargar hindranir, hóla, hæðir og skurði og á sama tíma leysa hinar ýmsu þrautir til að komast á leiðarenda.
Drulluhlaup Krónunnar er hluti af Íþróttaveislu UMFÍ og 100 ára afmæli Ungmennasambands Kjalarnesþings (UMSK).
„Við erum hrikalega spennt að halda drullugasta hlaup landsins í fyrsta sinn og er markmiðið einfaldlega að hafa gaman og stunda skemmtilega hreyfingu. Við miðum við að krakkar, átta ára og eldri, komist auðveldlega í gegnum brautina með aðstoð foreldra eða forráðamanna og síðan hafa allir þátttakendur kost á að skola af sér í Varmárlaug að hlaupi loknu,“ er haft eftir Valdimar Gunnarssyni, framkvæmdastjóra UMSK, í tilkynningu.
Þá halda skemmtikraftarnir Eva Ruza og Siggi Gunnars fjörinu gangandi á meðan viðburðinum stendur. Hlaupið, sem styrkt er af Krónunni, er auk þess haldið til að leggja áherslu á lýðheilsumál og heilbrigðan lífsstíl.
Skráning í Drulluhlaup Krónunnar fer fram hér.