Söngkonan Lizzo birti nýverið myndir af sér á sundfötunum sem skilja lítið eftir fyrir ímyndunaraflið. Aðdáendur söngkonunnar tóku myndunum fagnandi.
Myndirnar eru teknar á ströndinni og klæðist Lizzo sunfötum frá Yitty sem hafa notið mikilla vinsælda. Fyrr sama dag birti söngkonan myndband af sér að „twerka“ í flæðarmálinu.
Lizzo nýtur nú lífsins í fríi ásamt vinum sínum eftir að lag hennar, As It Was, komst í fyrsta sæti á Billboard Hot 100 listanum.
Lizzo er í sambandi með leikaranum og grínistanum Myke Wright.