Leikkonan Anne Heche er látin, en hún lenti í bílslysi á föstudaginn fyrir viku. Hún var 53 ára að aldri og skilur eftir sig tvo syni.
Fjölskylda hennar staðfesti andlát hennar, en fyrr í dag greindi fjölskyldan frá því að Heche væri ekki hugað líf, þar sem hún hefði hlotið mikinn súrefnisskort sem olli alvarlegum heilaskaða.
Heche ók bifreið sinni inn í tveggja hæða hús á mikilli ferð í Los Angeles í Bandaríkjunum á föstudag í síðustu viku. Grunur lék á um að hún hefði ekið undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.
Leikkonan var þekktust fyrir leik sinn í Six Days and Seven Nights, The Vanished, Quantico og Chicago PD. Hún var einnig fyrrverandi maki þáttastjórnandans Ellen DeGeneres.