Læknar gera ekki ráð fyrir að bandaríska leikkonan Anne Heche muni lifa af slysið sem hún lenti í á föstudag fyrir viku. Fjölskylda hennar greinir frá þessu en leikkonan liggur enn í dái eftir slysið. Hún hlaut mikinn súrefnisskort sem olli alvarlegum heilaskaða.
Fjölskyldan þakkaði fyrir þann hlýhug sem þeim hefur verið sýndur undanfarnar vikur og þakkaði læknum og hjúkrunarfræðingum á sjúkrahúsinu fyrir vinnu þeirra.
Heche ók bifreið sinni inn í tveggja hæða hús á mikilli ferð í Los Angeles í Bandaríkjunum á föstudag í síðustu viku. Hún er grunuðu um að hafa ekið undir áhrifum áfengis eða fíkniefna en frumniðurstöður blóðrannsóknar sýna að hún var undir áhrifum lyfja, þó eigi eftir að gera frekar rannsóknir til að útiloka lyf sem hún fékk við komuna á sjúkrahús.
Leikkonan er þekktust fyrir leik sinn í Six Days and Seven Nights, The Vanished, Quantico og Chicago PD. Hún er einnig fyrrverandi maki þáttastjórnandans Ellen DeGeneres.