Fyrrverandi eiginmaður söngkonunnar Britney Spears hefur verið sakfelldur fyrir að hafa brotist inn í hús Spears að morgni brúðkaupsdags hennar í júní á meðan verið var að undirbúa athöfnina.
ABC News greinir frá því að Jason Alexander hafi verið dæmdur í 64 daga fangelsi, en hann hefur nú þegar setið inni í þann tíma og er því nú frjáls ferða sinna.
Spears giftist líkamsræktarþjálfaranum, Sam Asghari, þann 9. júní en þetta er þriðja hjónaband Spears. Alexander var fyrsti eiginmaður hennar en þau voru einungis gift í 55 klukkustundir árið 2004.
Er Alexander braust inn í hús Spears í júní læsti hann sig í svefnherbergi söngkonunnar er hún var að undirbúa sig fyrir brúðkaupið. Hann deildi innrásinni í beinni útsendingu á samfélagsmiðlinum Instagram. Alexander neitaði að yfirgefa húsið og réðst á öryggisvörð ásamt því að eyðileggja hurð.
Dómari úrskurðaði Alexander í nálgunarbann svo hann má ekki koma nærri Spears né öryggisverði hennar.