Euphoria-stjarna á lausu

Leikarinn Jacob Elordi er einhleypur á ný.
Leikarinn Jacob Elordi er einhleypur á ný. Ljósmynd/IMDb.com

Leikarinn Jacob Elordi og Youtube-stjarnan Olivia Jade Giannulli eru sögð vera hætt saman, en orðrómur um ástarsamband þeirra hófst í desember 2021 eftir að þau sáust á stefnumóti í Los Angeles, Bandaríkjunum. 

Elordi skaust upp á stjörnuhiminninn eftir leik sinn í þáttaröðum Euphoria og kvikmyndunum The Kissing Booth. Hann var áður með fyrirsætunni Kaia Gerber, en þau hættu saman í nóvember 2021 eftir rúmlega árs samband. 

Gianulli hefur notið mikilla vinsælda á Youtube og Instagram, en hún er dóttir hönnuðarins Mossimo Giannulli og leikkonunnar Lori Loughlin. Foreldrar hennar sátu inni á síðasta og þar síðasta ári fyrir að greiða veg dætra sinna að betri háskóla. Að sögn heimildarmanns Us Weekly er Gianulli nú „einhleyp og skemmtir sér“ á meðan Elordi er sagður einbeita sér að ferli sínum. 

View this post on Instagram

A post shared by olivia jade (@oliviajade)

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup