Tvær íslenskar konur sáust stíga upp í leigubíl með einum af sigurvegara raunveruleikaþáttanna Love Island, Davide Sanclimenti, í London á Bretlandi á laugardagskvöld. Sun greinir frá og segir konurnar vera Matthildi Ylfu Þorsteinsdóttur og Anítu Gunnarsdóttur.
Davide og þær Matthildur og Aníta sáust fara upp í leigubíl með honum eftir að bardagakeppni lauk í O2 í London. Annar karlmaður fór með þeim og er talið að hann sé vinur Davide.
Í umfjöllun Sun er tekið fram að kærasta Davide, Ekin-Su, væri stödd í útlöndum um þessar mundir. Parið vann Love Island þáttaröðina nú í sumar og hefur notið mikilla vinsælda.
Blaðið segir að ekkert gefi til kynna að nokkuð ósæmilegt hafi átt sér stað, en umboðsmenn Davide og Ekin-Su vildu ekki tjá sig um málið.