25 ár frá andláti Díönu prinsessu

Díana prinsessa áorkaði ýmsu á sviði góðgerðamála á sinni stuttu …
Díana prinsessa áorkaði ýmsu á sviði góðgerðamála á sinni stuttu ævi. AFP

Í dag eru 25 ár liðin frá dauða Díönu prinsessu. Díana sem jafnan var kölluð prinsessa fólksins lést aðeins 36 ára að aldri í bílslysi í París. 

Díana sinnti ýmsum góðgerðamálum af miklum móð. Eftirminnilegt er þegar hún gekk um jarðsprengjusvæði í fullum skrúða til þess að stuðla að banni á notkun jarðsprengja. Þá lagði hún sérstaka áherslu á að beina sjónum almennings að málefnum jaðarsetts fólks til dæmis heimilislausra og þeirra sem þjáðust af alnæmi. Hún lagði sig fram um að minnka fordóma fólks og vakti til dæmis heimsathygli þegar hún heimsótti líknarheimili fyrir HIV smitaða einstaklinga og tók í höndina á manni með alnæmi og var ekki með hanska. 

„HIV gerir fólk ekki hættulegt að þekkja. Það má taka í hendurnar á því og gefa því faðmlag. Guð veit að það þarf á því að halda,“ sagði Díana.

Mikið var um dýrðir þegar tuttugu ár voru liðin frá andláti Díönu prinsessu en nú verður hennar minnst með mun lágstemmdari hætti. Bræðurnir Harry og Vilhjálmur munu minnast hennar hvort í sínu lagi með fjölskyldum sínum og ekki verður efnt til sérstakrar minningarathafnar. Fjölmargir hafa þó lagt blómvendi við heimili Díönu í London, Kensington höll.

Vilhjálmur prins fylgir móður sinni.
Vilhjálmur prins fylgir móður sinni. AFP
Feðgarnir við útför móður sinnar.
Feðgarnir við útför móður sinnar. AFP
Vilhjálmur prins minnist móður sinnar skömmu eftir andlát hennar 5. …
Vilhjálmur prins minnist móður sinnar skömmu eftir andlát hennar 5. september 1997. AFP
Bræðurnir munu minnast móður sinnar í sitthvoru lagi. Það andar …
Bræðurnir munu minnast móður sinnar í sitthvoru lagi. Það andar köldu þeirra á milli. AFP
Díana prinsessa og móðir Teresa árið 1992.
Díana prinsessa og móðir Teresa árið 1992. AFP
Málefni barna áttu sérstakan stað í hjarta Díönu prinsessu.
Málefni barna áttu sérstakan stað í hjarta Díönu prinsessu. AFP
Díana prinsessa og Nelson Mandela á góðri stund.
Díana prinsessa og Nelson Mandela á góðri stund. AFP
Hjónaband hennar og Karls Bretaprins var dauðadæmt frá upphafi enda …
Hjónaband hennar og Karls Bretaprins var dauðadæmt frá upphafi enda hann ástfanginn af annarri konu allan tímann. AFP
Díana prinsessa var líka mikil tískufyrirmynd og veitir fólki enn …
Díana prinsessa var líka mikil tískufyrirmynd og veitir fólki enn í dag mikinn innblástur. AFP
Díana prinsessa sá ekki sólina fyrir börnunum sínum og gerði …
Díana prinsessa sá ekki sólina fyrir börnunum sínum og gerði hvað hún gat til þess að gefa þeim eðlilega æsku. Hér er hún að kenna þeim á brimbretti. AFP
Stytta til minningar um Díönu prinsessu var afhjúpuð fyrir ári …
Stytta til minningar um Díönu prinsessu var afhjúpuð fyrir ári síðan. AFP
Fólk safnast saman til þess að minnast að 25 ár …
Fólk safnast saman til þess að minnast að 25 ár eru liðin frá andláti Díönu prinsessu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ráð frá einhverjum þér eldri geta komið þér að gagni í dag og orðið til þess að auka tekjumöguleika þína. Líttu málin raunsönnum augum og þá sést að flest er í lagi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ráð frá einhverjum þér eldri geta komið þér að gagni í dag og orðið til þess að auka tekjumöguleika þína. Líttu málin raunsönnum augum og þá sést að flest er í lagi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir